Veritas fær verðlaun fyrir snyrtilega lóð fyrirtækis 2022

28.08.2022 Veritas
Veritas fær verðlaun fyrir snyrtilega lóð fyrirtækis 2022

Lóð fyrirtækisins við Hörgatún 2 í Garðabæ fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega lóð fyrirtækis 2022 frá Garðabæ. Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, tók á móti viðurkenningunni fimmtudaginn 25. ágúst þegar umhverfisviðurkenningar Garðabæjar fyrir árið 2022 voru veittar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi.

Í umsögn á heimasíðu Garðabæjar segir "Fyrirtækið Vistor hefur alla tíð haldið lóð sinni við Hörgatún 2 snyrtilegri og hreinni. Fagmannlega útsett sumarblómabeð í kerjum og vel hirtum gróskumiklum grasflötum gleðja augu. Lóðin er hrein og falleg og Garðabæ til sóma."

Veritas hefur alla tíð lagt metnað sinn í að halda lóðinni hreinni og fínni og er gaman þegar eftir er tekið.