EN
Hlutverk Veritas

Að styðja og styrkja dótturfélögin til vaxtar og framþróunar

Veritas er móðurfélag sem styður og styrkir dótturfélög sín til vaxtar og framþróunar á íslenskum heilbrigðismarkaði.

Hlutverk félagsins er að skapa umgjörð sem gerir hverju dótturfélagi kleift að sinna sínu sérsviði af fagmennsku, ábyrgð og árangri.

Veritas og öll dótturfélög hennar deila sameiginlegri framtíðarsýn um að bæta heilbrigði og auka lífsgæði fólks og dýra.

Með hreinskiptni, áreiðanleika og framsækni að grunni leggja Veritas og dótturfélög áherslu á gæði, þjónustu og samfélagslega ábyrgð í öllu starfi.

Stefnur

Veritas starfar af ábyrgð, fagmennsku og heiðarleika

Sjálfbærniuppgjör 2025

Sjálfbærniuppgjör Veritas samstæðunnar fyrir árið 2025

Sjálfbærniuppgjör 2025

Umhverfisstefna 

Við vinnum markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum og stuðla að sjálfbærum rekstri. Ábyrg nýting auðlinda, flokkun, endurvinnsla og vistvæn innkaup eru hluti af daglegu starfi okkar.

Umhverfisstefna Veritas

Mannauðs og jafnréttisstefna

Við leggjum áherslu á að skapa framsækið og öflugt starfsumhverfi þar sem jafnrétti, mannréttindi, virðing og traust eru í öndvegi. Stefna okkar tryggir jafna möguleika, sanngirni í ráðningum og launum og stuðlar að jákvæðri og faglegri fyrirtækjamenningu. Við vinnum markvisst gegn hvers kyns mismunun og fögnum fjölbreytileika. Velferð, starfsánægja og stöðug hæfniþróun eru leiðarljós í daglegu starfi okkar.

Mannauðs og jafnréttisstefna

Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun okkar tryggir að öllu starfsfólki standi til boða jöfn tækifæri, sanngirni og virðing – óháð kyni, uppruna eða öðrum þáttum. Áætlunin byggir á gildandi lögum og leggur áherslu á launajafnrétti, opið umsóknarferli, jafna möguleika til starfsþróunar og markvissar aðgerðir gegn hvers kyns mismunun. Við vinnum stöðugt að því að skapa hvetjandi og sanngjarnt starfsumhverfi þar sem fjölbreytileiki og jafnrétti eru í öndvegi. Framfylgd og endurskoðun áætlunarinnar er tryggð með reglulegri eftirfylgni og þátttöku allra stjórnenda og starfsfólks.

Jafnréttisáætlun

 

Jafnlaunastefna 

Félögin gæta fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Starfsfólk félaga skal fá greitt jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum forsendum

Jafnlaunastefna 

Siða og samskiptareglur 

Siða og samskiptareglur

Upplýsingaöryggisstefna

Öryggi upplýsinga er grundvallaratriði í starfsemi Veritas.Við verndum gögn viðskiptavina, samstarfsaðila og starfsmanna í samræmi við alþjóðlega staðla og höfum stjórnkerfi upplýsingaöryggis vottað samkvæmt ISO 27001.

Upplýsingaöryggisstefna Veritas

Skipulag og rekstur

Veritas sinnir rekstri og stoðþjónustu fyrir dótturfélögin

Markmiðið er að skapa traustan grunn sem styður við daglega starfsemi dótturfélaganna til að gera þeim kleift að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni – þjónustu við heilbrigðiskerfið og samfélagið.

Framkvæmdastjórn Veritas stýrir daglegum rekstri móðurfélagsins og styður við dótturfélögin í þeirra starfsemi:

Fjármáladeild annast bókhald, reikningagreiðslur og fjárhagslega greiningu. 

Mannauðsmál og innri þjónusta felur í sér mannauð, fræðslu og ráðgjöf.

Upplýsingatækni sér um rekstur og öryggi tölvukerfa fyrir móðurfélagið og dótturfélögin og tryggir þannig áreiðanlega og örugga starfsemi.

Stjórnendur Veritas

Jón Björnsson

Jón Björnsson

Forstjóri

Jón tók við sem forstjóri Veritas í Ágúst 2024. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eitt af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.

Brynja Dís Sólmundsdóttir

Brynja Dís Sólmundsdóttir

Sviðstjóri upplýsingatæknisviðs og innviða

Brynja Dís Sólmundsdóttir tók við starfi sviðsstjóra upplýsingatæknisviðs og innviða árið 2025. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og umbreytingarverkefnum og hefur gegnt stjórnunarhlutverkum bæði innan rekstrar, ráðgjafar og upplýsingatækni. Brynja leiðir sviðið með áherslu á stafræna þróun, öryggi, einfalda ferla og innviði sem styðja við vöxt og árangur samstæðunnar. Brynja er með meistaragráðu í fjármálum, M.Sc. gráðu í lyfjafræði og APME-gráðu í verkefnastjórnun.

Harpa Víðisdóttir

Harpa Víðisdóttir

Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu

Harpa Víðisdóttir tók við starfi sviðsstjóra mannauðs og innri þjónustu árið 2025. Hún hefur áralanga reynslu af leiðtogastörfum á sviði mannauðsmála og hefur starfað í lykilhlutverkum innan trygginga-, fjármála- og orkugeirans. Harpa leiðir svið mannauðs og innri þjónustu með áherslu á einföld og skýr ferli, uppbyggingu heilbrigðrar vinnustaðamenningar og þróun öflugrar leiðtogamennsku. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt með BS-gráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í mannauðsstjórnun.

Kjartan Steinsson

Kjartan Steinsson

Fjármálastjóri

Kjartan Steinsson er fjármálastjóri Veritas og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun samstæðunnar um árabil. Hann býr yfir víðtækri reynslu af rekstrar- og fjármálastjórnun og ber ábyrgð á fjármálum samstæðunnar, rekstrarfjármögnun og fasteignum. Áður starfaði hann meðal annars við stjórnunar- og fjármálastörf hjá íslenskum fyrirtækjum í fjölbreyttum atvinnugreinum. Kjartan er viðskiptafræðingur að mennt, með Cand. oecon.-gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands.

Stjórn Veritas

Hreggviður Jónsson

Hreggviður Jónsson

Stjórnarformaður

Hreggviður Jónsson er stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas. Hreggviður útskrifaðist með BA í hagfræði frá Macalester College í St. Paul árið 1987 og með MBA gráðu frá Harvard Business School í Boston 1993. Hann hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu úr ýmsum geirum þjóðlífsins og var formaður Viðskiptaráðs Íslands frá 2012-2016. Hreggviður var forstjóri Veritas og þar áður Vistor frá 2002-2013. Hann starfaði hjá Cargill í Bandaríkjunum og síðar sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Svíþjóð áður en hann varð fjármálastjóri og síðar forstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og Norðurljósa. Hreggviður hefur setið í stjórn hjá ýmsum fyrirtækjum og samtökum.

Þóranna Jónsdóttir

Þóranna Jónsdóttir

Stjórnarkona

Þóranna Jónsdóttir starfar sem stjórnendaráðgjafi hjá eigin fyrirtæki, Delta-ráðgjöf. Hún er einnig lektor við Háskólann í Reykjavík og hefur um árabil sinnt ýmsum störfum við skólann, meðal annars sem forseti viðskiptadeildar og framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar. Þá hefur Þóranna starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Auði Capital, Veritas og Vistor, auk þess að vera fyrsti framkvæmdastjóri Artasan. Þóranna hefur víðtæka reynslu af stjórnendaþjálfun og ráðgjöf á sviði breytingastjórnunar, stefnumótunar og stjórnarhátta. Hún er formaður stjórnar Landsbréfa og hefur áður setið m.a. í stjórn Festi, Krónunnar, Íslandsbanka og Lyfju. Þóranna er doktor í stjórnarháttum frá Cranfield University í Bretlandi, lauk MBA gráðu frá IESE í Barcelona og MSc gráðu í lyfjafræði frá HÍ.

Hörður Arnarson

Hörður Arnarson

Stjórnarmaður

Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Hörður var tímabundið forstjóri Sjóvár og leiddi endurskipulagningu félagsins 2009. Hann starfaði hjá Marel hf. frá 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999-2009. Hörður hefur viðamikla reynslu af stjórnun fyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa í íslensku atvinnulífi á undanförnum árum. Hörður er með próf í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands og doktorspróf í verkfræði frá DTU, ásamt því að hafa sótt ýmis námskeið við INSEAD og Harvard Business School.

Stjórnendur dótturfélaga Veritas

Arnar Þórðarson

Arnar Þórðarson

Framkvæmdastjóri - Vistor

Arnar Þórðarson tók við starfi framkvæmdastjóra Vistor árið 2020. Hann hefur víðtæka reynslu af markaðs- og stjórnunarstörfum innan heilbrigðis- og lyfjageirans, bæði hérlendis og erlendis, meðal annars frá Novo Nordisk og Vistor. Arnar leiðir fyrirtækið með áherslu á fagmennsku, sterkt samstarf og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila. Hann er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Auburn University Montgomery. og M.Sc. gráðu í markaðsfræði frá Copenhagen Business School.

Brynjúlfur Guðmundsson

Brynjúlfur Guðmundsson

Framkvæmdastjóri - Artasan

Brynjúlfur Guðmundsson er framkvæmdastjóri Artasan. Hann hefur áralanga reynslu af sölu-, markaðs- og stjórnunarstörfum innan heilbrigðis- og lyfjageirans, bæði á Íslandi og erlendis. Á starfsferli sínum hefur hann starfað meðal annars hjá Artasan, ARRI í London og Accenture á Englandi. Brynjúlfur leggur áherslu á skýra stefnu, öflugt samstarf og þjónustu sem skapar virði fyrir viðskiptavini og samfélagið. Hann er með B.Sc. gráðu í alþjóða markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.og MBA-gráðu frá sama skóla.

Sigtryggur Hilmarsson

Sigtryggur Hilmarsson

Framkvæmdastjóri - STOÐ

Sigtryggur Hilmarsson tók við starfi framkvæmdastjóra STOÐAR árið 2026. Hann hefur áratuga reynslu af stjórnunarstörfum og stefnumótun innan heilbrigðis-, lyfja- og lækningatæknigeirans og hefur gegnt lykilhlutverkum hjá meðal annars MEDOR, Vistor og Radiometer. Sigtryggur leiðir STOÐ með áherslu á faglega þjónustu, nýsköpun og árangursríkt samstarf við heilbrigðisstofnanir og viðskiptavini. Sigtryggur er lyfjafræðingur að mennt og hefur MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management, Erasmus University.

Snorri Páll Sigurðsson

Snorri Páll Sigurðsson

Framkvæmdastjóri - Distica

Snorri Páll Sigurðsson tók við starfi framkvæmdastjóra Distica árið 2026. Hann hefur víðtæka reynslu af rekstri, aðfangakeðjustjórnun og þróun þjónustufyrirtækja og hefur gegnt fjölbreyttum stjórnendastörfum bæði hérlendis og erlendis. Áður starfaði hann meðal annars hjá Alvotech, Landspítalanum og Maersk í Danmörku. Snorri leiðir Distica með áherslu á stöðugar umbætur, öflugt samstarf og trausta þjónustu sem styður við árangur viðskiptavina og áframhaldandi vöxt fyrirtækisins. Snorri er viðskiptafræðingur að mennt, með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá Copenhagen Business School.