Veritas er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo 2022

27.09.2022 Veritas
Veritas er Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo 2022

Veritas stendur styrkum stoðum og hlýtur nú viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki frá Creditinfo tíunda árið í röð.

Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði, sem eru listuð hér fyrir neðan:

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
  • Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 10 milljarða þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
  • Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
  • Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðust þrjú ár