Samfélagsskýrsla Veritas 2021

29.04.2022 Veritas
Samfélagsskýrsla Veritas 2021

Árið 2021 var á margan hátt einstakt þar sem Veritas hefur verið í fararbroddi í innflutningi og dreifingu á heilbrigðisvörum og lyfjum. Aukin þörf á vörum og þjónustu vegna heimsfaraldursins setti vissulega mark sitt á þau markmið í sjálfbærni sem við settum okkur að ná á árinu, en við vonumst til þess að á árinu 2022 skapist eðlilegra rekstrarumhverfi.

Við höfum þó unnið ýmsa minni sigra á vegferð okkar til sjálfbærrar þróunar og ætlum okkur að gera enn betur í málaflokknum til framtíðar. Það kristallast í þeirri staðreynd að sjálfbærni er holl vegferð og hefur hjálpað okkur mikið í því að sjá hvar við stöndum og hvar við getum gert betur. Við setjum því áfram fram metnaðarfull markmið, bæði hvað varðar kolefnisspor okkar, en ætlum einnig í ýmis umbótaverkefni sem spruttu upp úr vinnustofum allra stjórnenda sem haldnar voru í upphafi þessa árs. Við trúum því að við getum unnið fleiri sigra með sjálfbærni að leiðarljósi því saman breytum við heiminum.

Smelltu hér til þess að opna skýrsluna