Artasan kaupir Mat og pökkun

24.05.2023 Veritas + Artasan
Artasan kaupir Mat og pökkun

Artasan ehf. hefur keypt allt hlutafé Matar og pökkunar ehf. og hefur Samkeppniseftirlitið þegar samþykkt kaupin. Matur og pökkun ehf. var stofnað árið 2016 og er í eigu Þorkels Traustasonar og Sæþórs Matthíassonar.

„Með kaupum á Mat og pökkun erum við að styrkja stöðu okkar á dagvörumarkaði til muna. Þekking og reynsla Matar og pökkunar á dagvörumarkaði mun nýtast vel við frekari uppbyggingu á starfsemi Artasan,“ segir Brynjúlfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Artasan.

Matur og pökkun sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á ýmsum matvörum, einkum sælgæti, kexi, þurrkuðum ávöxtum og hnetum. Helstu viðskiptavinir félagsins eru dagvöruverslanir og er Matur og pökkun meðal annars með vörumerkið Weber. Samkvæmt uppgjöri nam velta félagsins 432 milljónum króna árið 2022 og jókst þar með um 20% frá árinu þar á undan.

„Við erum spenntir fyrir því að ganga til liðs við Artasan og sjáum þar mikil tækifæri sem partur af stærri og sterkari heild,“ segja Þorkell Traustason og Sæþór Matthíasson eigendur Matar og pökkunar.

Fjallað er um kaupin í Viðskiptablaðinu hér