EN
Efnahagur Tekjur Veritas 2014 til 2020 Þróun tekna og framlegðar 2014-2020 EBIT 2014-2020 Efnahagur 2014-2020 Lykiltölur Skattspor - Guðrúnarborg

Efnahagur

Sterk fjárhagsleg staða og samfélagsleg ábyrgð

Veritas gegnir mikilvægu hlutverki með því að annast innflutning, sölu og dreifingu á lyfjum, lækningartækjum og öðrum vörum fyrir íslenska heilbrigðiskerfið. Það er því mikilvægt að Veritas hafi fjárhagslegan styrk til þess að takast á við efnahagssveiflur og áföll eins og þau sem dunið hafa á íslensku samfélagi á liðnum árum. Tekjur Veritas hafa vaxið stöðugt síðustu ár og námu þær 24,9 milljörðum árið 2020. Samhliða auknum tekjum hefur fjárhagslegur styrkleiki Veritas aukist . Eignir voru 10,2 milljarðar í árslok 2020 og eigið fé 3,5 milljarðar og eiginfjárhlutfall 34,6%. Veritas er því í góðri stöðu til þess að gegna því mikilvæga hlutverki sem það hefur í þjónustu við íslenska heilbrigðiskerfið.

Kjartan Steinsson, fjármálastjóri Veritas






Guðrúnarborg

*Guðrúnarborg er móðurfélag Veritas Capital og fasteignafélagsins Hávarðsstaða.

Veritas leigir allar fasteignir Hávarðsstaða undir rekstur sinn, fasteignagjöld Hávarðsstaða eru því hluti af skattaspori Veritas.