EN

Áfram í átt að markmiðum

Sjálfbærni- og samfélagsskýrsla Veritas 2022

Veritas kynnir með miklu stolti sjálfbærniskýrslu samstæðunnar þriðja árið í röð. Síðasta ár var einmitt árið sem reksturinn fór í hefðbundinn farveg eftir heimsfaraldur.Með því að birta sjálfbærniskýrslu samkvæmt GRI-staðlinum er Veritas að gefa hagsmunaaðilum sínum skýrari mynd af starfseminni og áhrifum félagsins á samfélagið. Með sjálfbærni að leiðarljósi ætlum við að halda áfram að fagna sigrum og tökum eitt skref áfram í þeirri vegferð að breyta heiminum.

Ávarp forstjóra Markmiðin okkar
Alternate Text
Alternate Text
Alternate Text
Alternate Text

Sjálfbærnimarkmið og áherslur

Á árinu 2022 voru haldnar vinnustofur með stjórnendum Veritas samstæðunnar þar sem áherslur voru lagðar í sjálfbærnimálum fyrirtækisins. Áherslum var raðað eftir mikilvægi að mati stjórnenda sem höfðu fyrri sjálfbærniskýrslur og umhverfisstefnur að leiðarljósi í vinnunni. Sjálfbærniáherslur Veritas 2022-2023 byggja þannig á þeim mikilvægu þáttum sem að mati stjórnenda geta haft mest áhrif á umhverfi, samfélag, efnahag og mannauð. Félagið er gríðarlega mikilvægur hlekkur í öllu heilbrigðiskerfi landsins og tekur því samfélagslegt hlutverk sitt alvarlega. Með þessum áherslum vonast stjórnendur til þess að auka jákvæð áhrif fyrirtækisins á samfélagið og draga úr þeim neikvæðu. Áherslurnar voru einnig mátaðar við heimsmarkmið 5, 10, 12 og 13. Í umhverfismálum er lögð áhersla á lækkað kolefnisfótspor, í efnahag á lækkaðan kostnað vegna förgunar, áherslur á gagnsæi, heiðarleika og gott siðferði í stjórnarháttum og fjölbreytileika og jöfn vaxtartækifæri svo fátt eitt sé nefnt. Við trúum því að við getum unnið fleiri sigra með sjálfbærni að leiðarljósi því saman breytum við heiminum.  


Cgi Standard

GRI tilvísunartafla

GRI eru alþjóðlega viðurkenndir staðlar um miðlun upplýsinga um samfélagslega ábyrgð og eru notaðir í yfir 100 löndum. GRI eru almennt taldir víðtækustu og nákvæmustu staðlarnir til að halda utan um efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg áhrif fyrirtækja og stofnana.