EN
Efnahagur Tekjur Veritas 2017-2021 Þróun tekna og framlegðar 2017-2021 EBIT 2017-2021 Efnahagur 2017-2021 Lykiltölur Skattspor - Guðrúnarborg

Efnahagur

Sterk fjárhagsleg staða og samfélagsleg ábyrgð

Veritas gegnir mikilvægu hlutverki með því að annast innflutning, sölu og dreifingu á lyfjum, lækningartækjum og öðrum vörum fyrir íslenska heilbrigðiskerfið. Það er því mikilvægt að Veritas hafi fjárhagslegan styrk til þess að takast á við efnahagssveiflur og áföll eins og þau sem dunið hafa á íslensku samfélagi á liðnum árum. Tekjur Veritas hafa vaxið stöðugt síðustu ár og námu þær 28,2 milljörðum árið 2021. Samhliða auknum tekjum hefur fjárhagslegur styrkleiki Veritas aukist . Eignir voru um 11 milljarðar í árslok 2021 og eigið fé um 4 milljarðar og eiginfjárhlutfall 36%. Veritas er því í góðri stöðu til þess að gegna því mikilvæga hlutverki sem það hefur í þjónustu við íslenska heilbrigðiskerfið.






Guðrúnarborg

*Guðrúnarborg er móðurfélag Veritas og fasteignafélagsins Hávarðsstaða.

Veritas leigir allar fasteignir Hávarðsstaða undir rekstur sinn, fasteignagjöld Hávarðsstaða eru því hluti af skattaspori Veritas.