EN
Dótturfélög

Leiðandi á íslenskum heilbrigðismarkaði

Dótturfélög Veritas eiga það öll sameiginlegt að starfa á heilbrigðismarkaði. Hvert félag er sérhæft og leiðandi á sínu sviði: í innflutningi, skráningu, markaðssetningu og dreifingu á lyfjum, hjúkrunarvörum, rannsóknartækjum og heilsuvörum. 

Félögin veita einnig ráðgjöf og þjónustu á sviði lækningatækja, hjúkrunar- og rannsóknarvara, auk stoðtækja, hjálpartækja og annarra sérlausna sem stuðla að bættri heilsu og lífsgæðum fólks og dýra.

  • Punktur 1 (3)

    Leiðandi í markaðssetningu á lyfjum og heilsuvörum

    Punktur 1 (3)

    Áratuga samstarf við apótek og smásölur

    Punktur 1 (3)

    Öflugt samstarf við alþjóðleg lyfjafyrirtæki

    Artasan er leiðandi fyrirtæki í skráningu, sölu og markaðssetningu á heilsuvörum, lausasölulyfjum og samheitalyfjum.

    Fyrirtækið vinnur náið með apótekum, smásöluaðilum og heilbrigðisstarfsfólki til að tryggja neytendum aðgengi að vörum sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan.

    Framkvæmdastjóri Artasan er Brynjúlfur Guðmundsson

    Artasan020015 2
  • Punktur 1 (3)

    Um 70% hlutdeild í lyfjadreifingu á Íslandi

    Punktur 1 (3)

    Eitt fullkomnasta vöruhús landsins

    Punktur 1 (3)

    Áratuga reynsla og sérhæfing

    Distica þjónar íslenskum heilbrigðismarkaði með innflutningi, vörustjórnun og dreifingu á lyfjum og öðrum heilbrigðisvörum. 

    Áreiðanleiki og þjónusta í hverju skrefi tryggja að nauðsynlegar vörur berist örugglega til þeirra sem þurfa á þeim að halda.

    Framkvæmdastjóri Distica er Júlía Rós Atladóttir

    Distica Promo
  • Punktur 1 (3)

    Leiðandi í lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvörum

    Punktur 1 (3)

    Sérhæfð ráðgjöf, sala og þjónusta

    Punktur 1 (3)

    Breitt vöruúrval sem uppfyllir ströngustu gæðakröfur

    MEDOR var stofnað til að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfðara framboði á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvörum.

    Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði og vinnur í nánu samstarfi við fagfólk til að tryggja áreiðanlegar, öruggar og skilvirkar lausnir sem bæta þjónustu og auka gæði í heilbrigðiskerfinu.

    Framkvæmdastjóri Medor er Sigtryggur Hilmarsson

    Medor Promo
  • Punktur 1 (3)

    Leiðandi í stoðtækjum- og hjálpartækjum

    Punktur 1 (3)

    Sérhæfð ráðgjöf, hönnun, sala og þjónusta

    Punktur 1 (3)

    Heildstæðar, einstaklingsmiðaðar lausnir

    Stoð er leiðandi fyrirtæki á sviði stoðtækja og hjálpartækja.

    Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun, framleiðslu og sölu á sérsniðnum lausnum sem styðja við hreyfigetu, endurhæfingu og sjálfstæði einstaklinga.

    Framkvæmdastjóri Stoð er Þóranna Jónsdóttir 

    Immedia Swan E Board With Wing 32
  • Punktur 1 (3)

    Leiðandi á sviði frumlyfja- og samheitalyfja

    Punktur 1 (3)

    Traustur samstarfsaðili heilbrigðisstofnanna

    Punktur 1 (3)

    Öflugt samstarf við alþjóðleg lyfjafyrirtæki

    Vistor er leiðandi fyrirtæki á sviði frumlyfja og samheitalyfja og býr yfir ríkri reynslu og skilningi á þörfum innan heilbrigðiskerfisins.

    Fyrirtækið starfar í nánu samstarfi við fjölmörg alþjóðleg lyfjafyrirtæki og veitir faglega þjónustu við skráningar, sölu og markaðsmál, klínískar rannsóknir og dreifingu.


    Framkvæmdastjóri Vistor er Arnar Þórðarson

    Vistor Promo