Veritas samstæðan sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og heilsueflingar
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og eru þau hvert um sig í fararbroddi á sínu sviði. Dótturfélög í samstæðu Veritas eru Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor. Móðurfélagið, Veritas, veitir dótturfélögunum stoðþjónustu, við umsýslu fjármála, upplýsingatækni, mannauðsstjórnun o.fl. svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Stjórnkerfi upplýsingaöryggis Veritas er vottað skv. ISO 27001 af British Standards Institution (BSI) í London. Veritas leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, metnað og ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi.
Veritas sér um alla stoðþjónustu fyrir dótturfélög sín og skiptist fyrirtækið í eftirfarandi deildir:
Fjármál og rekstur
Fjármáladeild annast bókhald, greiðslu reikninga, aðstoðar við greiningu tölulegra upplýsinga o.fl. Hildur Sandholt (hildur@veritas.is) er deildarstjóri fjármáladeildar.
Innri þjónusta
Deildin samanstendur af starfsmannasviði, Smiðju og mötuneyti. Hlutverk deildarinnar er að tryggja dótturfyrirtækjunum þjónustu á sviði ráðninga, frammistöðustjórnunar, ráðgjafar og fræðslu auk þess að veita dótturfélögum ýmsa stoðþjónustu. Markmið Veritas og dótturfyrirtækja er að hjá fyrirtækjunum starfi eingöngu hæfustu og ánægðustu starfsmennirnir sem vinna störf sín af alúð og áhuga.
Smiðjan samanstendur af aðstoðarmanni framkvæmdastjórnar, starfsmanni í móttöku og riturum. Verkefni Smiðjunnar eru fjölbreytt og má þar t.d. nefna símsvörun skiptiborðs, skipulagningu ferða og funda, útsendingu markpósts, prentun o.fl. Starfsmannastjóri og deildarstjóri innri þjónustu er Pétur Veigar Pétursson (petur@veritas.is).
Upplýsingatæknisvið
Upplýsingatæknideild Veritas sér um rekstur allra tölvukerfa fyrir Veritas og dótturfélög þess ásamt því að veita starfsmönnum félaganna þjónustu. Sviðsstjóri er Brynja Dís sólmundsdóttir (brynjas@veritas.is).
Framkvæmdastjórn Veritas

Jón Björnsson
ForstjóriJón tók við sem forstjóri Veritas í Ágúst 2024. Jón hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum. Jón situr m.a. í stjórnum Boozt.com, Origo Lausna og Dropp. Jón hefur jafnframt setið í stjórn Artasan, eins af fyrirtækjum Veritas, frá 2023.

Kjartan Steinsson
FjármálastjóriKjartan er viðskiptafræðingur (Cand. oecon.) af fjármálasviði frá Háskóla Íslands. Kjartan hefur áratuga reynslu af rekstrar- og fjármálastörfum og gekk til liðs við Vistor í janúar 2007 og síðar Veritas árið 2008. Hann ber ábyrgð á fjármálum Veritas samstæðunnar, rekstrarfjármunum og fasteignum. Kjartan starfaði á árunum 1997-2006 sem fjármálastjóri Ásbjörns Ólafssonar ehf. og sem framkvæmdastjóri BÍF á árunum 1992-1997.

Pétur Veigar Pétursson
Mannauðsstjóri / Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustuPétur Veigar gekk til liðs við Veritas í ársbyrjun 2016 og sinnti innleiðingu á Lean aðferðafræðinni innan allra fyrirtækja samstæðunnar, ásamt verkefnastýringu Lean verkefna. Þar áður starfaði hann m.a. sem fræðslustjóri hjá ISAL. Pétur Veigar er með B.Sc. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Arnar Þórðarson
Framkvæmdastjóri - VistorArnar tók við starfi framkvæmdastjóra af Gunni Helgadóttur síðla árs 2020. Hann er með M.Sc. í markaðsfræði frá Copenhagen Business School og B.Sc. í hagfræði frá Auburn Montgomery. Áður en Arnar tók við starfi framkvæmdastjóra starfaði hann sem markaðsstjóri hjá Vistor síðan um mitt ár 2018. Þar áður starfaði hann hjá Novo Nordisk, bæði sem vörustjóri í höfuðstöðvum, sem og í þýskum og dönskum dótturfélögum fyrirtækisins.

Brynjúlfur Guðmundsson
Framkvæmdastjóri - ArtasanBrynjúlfur Guðmundsson er framkvæmdastjóri Artasan. Brynjúlfur sinnti áður starfi markaðsstjóra lausasölulyfja hjá Artasan og þar á undan starfaði hann sem markaðsfulltrúi fyrir Evrópu og Asíu hjá ARRI í London og seinna sem ráðgjafi hjá Accenture í London, Englandi. Brynjúlfur situr í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) og Stoðar hf.
Brynjúlfur er með MBA gráðu og BSc í alþjóða markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Júlía Rós Atladóttir
Framkvæmdastjóri - DisticaJúlía Rós tók við sem framkvæmdastjóri Distica í maí 2020, áður starfaði Júlía sem markaðsstjóri hjá Vistor, deildarstjóri hjá Distica, þjónustustjóri hjá Icelandair, verkefnastjóri á þróunarsviði Actavis Group og framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola. Júlía Rós situr í stjórn Vörustjórnunarfélags Íslands Alzheimersamtakanna og GS1.
Júlía Rós hefur lokið AMP, Advanced Management program frá IESE, Barcelona Business School, meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun, diplómanámi í mannauðsstjórnun, diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun og B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands.

Sigtryggur Hilmarsson
Framkvæmdastjóri - MEDORSigtryggur hefur starfað sem framkvæmdastjóri MEDOR síðan 2011. Þar á undan starfaði hann hjá Vistor sem framkvæmdastjóri heilbrigðistæknisviðs og stjórnandi í viðskiptaþróun frá 2004. Á árunum 1996 til 2004 starfaði Sigtryggur sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Radiometer America í Cleveland, BNA og sem vörustjóri hjá sama fyrirtæki í Kaupmannahöfn. Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í Lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Sigtryggur er stjórnarformaður ORF Genetics hf. og situr í stjórn Stoð hf.

Þóranna Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri - StoðÞóranna hefur undanfarið starfað sem sjálfstæður stjórnendaráðgjafi m.a. fyrir Alvotech, Marel og ýmsar opinberar stofnanir. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum við Háskólann í Reykjavík, var forseti viðskiptadeildar 2013-2016 og framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar þar á undan. Hún var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá systurfélögunum Veritas og Vistor árin 2005-2008, fyrsti framkvæmdastjóri Artasan og ein af stofnfélögum Auðar Capital. Þóranna hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu, er formaður stjórnar Landsbréfa, í stjórn Veritas frá 2018 og áður m.a. í stjórnum Festi, Krónunnar, Íslandsbanka og Lyfju. Þóranna er með doktorsgráðu í viðskiptafræði frá Cranfield University, MBA gráðu frá IESE í Barcelona og MSc gráðu í lyfjafræði.
Stjórn Veritas

Hreggviður Jónsson
StjórnarformaðurHreggviður Jónsson er stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas. Hreggviður útskrifaðist með BA í hagfræði frá Macalester College í St. Paul árið 1987 og með MBA gráðu frá Harvard Business School í Boston 1993. Hann hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu úr ýmsum geirum þjóðlífsins og var formaður Viðskiptaráðs Íslands frá 2012-2016. Hreggviður var forstjóri Veritas og þar áður Vistor frá 2002-2013. Hann starfaði hjá Cargill í Bandaríkjunum og síðar sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Svíþjóð áður en hann varð fjármálastjóri og síðar forstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og Norðurljósa. Hreggviður hefur setið í stjórn hjá ýmsum fyrirtækjum og samtökum.

Þóranna Jónsdóttir
StjórnarkonaÞóranna Jónsdóttir starfar sem stjórnendaráðgjafi hjá eigin fyrirtæki, Delta-ráðgjöf. Hún er einnig lektor við Háskólann í Reykjavík og hefur um árabil sinnt ýmsum störfum við skólann, meðal annars sem forseti viðskiptadeildar og framkvæmdastjóri stjórnunar og rekstrar. Þá hefur Þóranna starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Auði Capital, Veritas og Vistor, auk þess að vera fyrsti framkvæmdastjóri Artasan. Þóranna hefur víðtæka reynslu af stjórnendaþjálfun og ráðgjöf á sviði breytingastjórnunar, stefnumótunar og stjórnarhátta. Hún er formaður stjórnar Landsbréfa og hefur áður setið m.a. í stjórn Festi, Krónunnar, Íslandsbanka og Lyfju. Þóranna er doktor í stjórnarháttum frá Cranfield University í Bretlandi, lauk MBA gráðu frá IESE í Barcelona og MSc gráðu í lyfjafræði frá HÍ.

Hörður Arnarson
StjórnarmaðurHörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Hörður var tímabundið forstjóri Sjóvár og leiddi endurskipulagningu félagsins 2009. Hann starfaði hjá Marel hf. frá 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999-2009. Hörður hefur viðamikla reynslu af stjórnun fyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa í íslensku atvinnulífi á undanförnum árum. Hörður er með próf í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands og doktorspróf í verkfræði frá DTU, ásamt því að hafa sótt ýmis námskeið við INSEAD og Harvard Business School.